Saga Háfells

Frá árinu 1979


Traustur verktaki frá 1979.
Háfell var stofnað 31. mars 1979 sem samvinnufélag. Fyrsta árið starfaði fyrirtækið aðallega sem vélaleiga en fljótlega fór fyrirtækið að taka þátt í útboðum.
Um áramót 1985–1986 urðu kaflaskipti í sögu Háfells þegar Eiður Haraldsson og fjölskylda hans yfirtóku rekstur fyrirtækisins og var skráningu þess þá breytt úr samvinnufélagi í einkahlutafélag. Háfell ehf. hefur nánast eingöngu starfað á útboðsmarkaði upp frá því. Fyrirtækið hefur frá þeim tíma aðallega unnið fyrir opinbera aðila, svo sem Vegagerðina, Reykjavíkurborg, Kópavogskaupstað og Hafnarfjarðarbæ. Einnig vann Háfell alla jarðvinnu við álver Norðuráls hf. á Grundartanga.
1979Háfell stofnað
1998Verkstæðis- og skrifstofuhús að Krókhálsi 12
2006Samningur um Héðinsfjarðargöng
2007Nýir eigendur taka við
Háfell í dag
Árið 1998 byggði Háfell verkstæðis- og skrifstofuhús yfir starfsemi sína að Krókhálsi 12 í Reykjavík. Sumarið 2006 var starfsemi skrifstofunnar flutt í nýtt skrifstofuhúsnæði að Skeifunni 11 og í dag er skrifstofa fyrirtækisins að Skeifunni 19. Árið 2006 skrifaði Háfell undir samning við Vegagerðina um gerð Héðinsfjarðarganga í samvinnu við tékkneska verktakafyrirtækið Metrostav a.s. Verklok voru 1. desember 2009.
Þann 11. maí 2007 urðu enn á ný kaflaskil hjá fyrirtækinu þegar nýir eigendur tóku við af Eiði Haraldssyni, þeir Skarphéðinn Ómarsson og Jóhann Gunnar Stefánsson. Í apríl 2013 seldi Jóhann Gunnar hlut sinn í félaginu til Skarphéðins. Í dag eiga Skarphéðinn og Linda Arilíusdóttir, eiginkona hans, alla hluti í Háfelli ehf.


Tenglar
Gagnlegir tenglar á samstarfsaðila, verkkaupa og aðra tengda aðila.

