Alhliða jarðvegsverktaki
Þjónusta Háfells
Starfsemi Háfells ehf. felst einkum í almennri verktöku. Fyrirtækið hefur komið að vegagerð og gatnagerð víðsvegar á Íslandi og hefur stóraukið starfsemi sína frá stofnun árið 1979. Verkefni hafa verið umfangsmikil og þá einkum fyrir opinbera aðila.
Fyrirtækið hefur til ráðstöfunar öflugan tækjakost sem gerir kleift að takast á við margs konar verkefni. Hægt er að semja um leigu á tækjum og má hafa samband við okkur vegna frekari upplýsinga hvað það varðar.
Helstu opinberu aðilar sem Háfell hefur unnið fyrir eru Vegagerðin, Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær o.fl. Háfell hefur einnig starfað fyrir fjölda fyrirtækja í einkageiranum.
Tilbúin að vinna með okkur?
- Sími575 9500
- Netfanghafell@hafell.is







