Héðinsfjarðargöng
Verkið
Framkvæmdin sem hér um ræðir eru tvenn jarðgöng ásamt vegskálum við enda ganganna, vegagerð að göngum og milli þeirra ásamt gerð einnar brúar. Jarðgöngin eru 3,7 km löng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og 6,9 km löng milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar. Breidd ganganna er 8,6 metrar. Jarðgöng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar eru grafin frá Siglufirði, göngin milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar eru grafin frá báðum endum. Vegskálarnir verða um 450 metrar.
Byggð verður 18 metra löng brú í Héðinsfirði. Vegagerð innan sem utan jarðganga er 14,9 km.
Helstu magntölur
Fyllingar úr skeringum og námum - 80.000 m³
Borskeringar - 31.000 m³
Fyllingar - 460.000 m³
Gröftur í göngum - 580.000 m³
Sprautusteypa - 24.000 m³
Steypa vegskála - 4.400 m³
Malbik - 170.000 m²
Nánari upplýsingar um verkið má finna á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar.
- Verkkaupi
- Vegagerðin
- Verktakar
- Samstarfsverkefni Háfells og tékkneska fyrirtækisins Metrostav
- Verktími
- Ágúst 2006 - Desember 2009
- Tilboðsupphæð
- 5,7 milljarðar.
- Verkefnastjóri
- Guðmundur Þór Björnsson
- Verkstjóri
- Örvar Tómasson (vegagerð)
- Fulltrúi verkkaupa
- Sigurður Oddsson
- Myndir
- 62
Fleiri verkefni
Verkið felst í gerð borplana undir jarðbora Jarðboranna á Hellisheiði og á Hengilssvæðinu.
Verktaki skal grafa fyrir götum og holræsum, leggja fráveitulagnir með brunnum og niðurföllum, fylla undir og yfir fráveitulagnir og í götur, undirbúa götur undir malbik.
Verktaki skal grafa fyrir götum og holræsum, leggja fráveitulagnir með brunnum og niðurföllum, fylla undir og yfir fráveitulagnir og í götur, undirbúa götur undir malbik.
Tilbúin að vinna með okkur?
- Sími575 9500
- Netfanghafell@hafell.is


































































