Verkefnin okkar
Háfell hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum víðsvegar um landið – allt frá jarðgöngum og stofnbrautum til gatnagerðar, lagna og lóðaframkvæmda. Hér má sjá úrval verkefna.
Verkið fólst í gerð göngu og hjólastígs milli Veðurstofuvegar og Litluhlíðar ásamt því að steypta gangstétt og endurnýja kantstein í Háuhlíð.
Verkið felst í því að leggja 500 millimetra skólplögn, Vallaræsi, frá gatnamótum Ásvallabrautar og Hádegisskarðs við Nóntorg og að Engjavöllum.
Framkvæmdin felst í lagningu nýs Kaldárselsvegar frá hringtorgi við Reykjanesbraut að hesthúsahverfi í Hlíðarþúfum.
Verkið fólst í að gera nýja Hringbraut í Reykjavík sunnan við núverandi Hringbraut (hér eftir kölluð gamla Hringbraut), neðan við lóð Landspítalans og BSÍ.
Verkið felst í að leggja nýja norður akbraut Sæbrautar norðan núverandi vegar og á kaflanum milli Laugarnesvegar og Kambsvegar alls 1,2 km.
Framkvæmdin sem hér um ræðir eru tvenn jarðgöng ásamt vegskálum við enda ganganna, vegagerð að göngum og milli þeirra ásamt gerð einnar brúar.
Verkið felst í gerð borplana undir jarðbora Jarðboranna á Hellisheiði og á Hengilssvæðinu.
Verktaki skal grafa fyrir götum og holræsum, leggja fráveitulagnir með brunnum og niðurföllum, fylla undir og yfir fráveitulagnir og í götur, undirbúa götur undir malbik.
Verktaki skal grafa fyrir götum og holræsum, leggja fráveitulagnir með brunnum og niðurföllum, fylla undir og yfir fráveitulagnir og í götur, undirbúa götur undir malbik.
Verkið fellst í að grafa út, fylla og þjappa púða undir nýbyggingu, grafa og sprengja lóð og fylla undir burðarlag.
Um er að ræða 4 km vegarkafla á Hringveginum við Hamarsfjörð, frá Valtýskambi að Sandbrekku.
Um er að ræða endurbyggingu á núverandi vegi, frá Þrengslavegi að nýrri vatnsverksmiðju í Hlíðarenda eða um 5,3 km vegarkafla.
Tilbúin að vinna með okkur?
- Sími575 9500
- Netfanghafell@hafell.is





















